Sveigjanlegur skjávarpi sem virkar hvar sem er, hvenær sem er svo lengi sem það er rafmagn til staðar. Skjávarpinn er útbúinn Android 9.0 sem gerir þér kleift að sækja streymisveitur á borð við Sjónvarp Símans. Þar sem að hátalarinn er útbúinn tveim innbyggðum hátölurum er enginn þörf á því að tengja hátalara við skjávarpann, heldur uppfyllir hann þær þarfir án nokkurrar fyrirhafnar.
Vertu með netið á ferðinni! Taktu myndlykilinn með þér á ferðina! Huawei B535 4G styður bæði 2.4 GHz og 5.0 GHz tíðnisambönd, það er því leikur einn að tengja myndlykilinn frá Símanum við þráðlausa netið frá 4G Routernum. Horfðu áhyggjulaus á sjónvarpið í fríinu.
Flottur heimasími frá Panasonic með tveimur handtækjum og frábærum hljómgæðum. Handfrjáls hátalari í handtækinu, símaskrá fyrir 120 nöfn og símanúmer, númerabirtir sem geymir síðustu 50 hringd númer. Frábær rafhlöðuending allt að 15 tímar í tali og 170 klst í bið.
Xiaomi TV Box S gerir þér kleift að breyta hefðbundnu sjónvarpi í snjallsjónvarp. Boxinu er stungið í samband við sjónvarpið þitt með HDMI snúru og er siðan stýrt með lítilli fjarstýringu sem fylgir boxinu. Þegar þú hefur klárað að setja upp boxið opnast þér heill heimur afþreyingar í forritum eins og Sjónvarpi Símans, Youtube og Spotify.
Loftnet er tilvalið fyrir sumarbústaði og afskekkt heimili sem ná ekki nægilega góðu sambandi. Loftnetið er fest upp á þak til að ná betra sambandi og tengt við 4G beini sem býr til þráðlaust net. Kapall og festingar fylgja með.
Skemmtileg 48 MP stafræn myndavél með innbyggðum svarthvítum prentara! Vélin getur einnig tekið upp myndbönd og inniheldur forrit til að prenta út myndirnar þínar með ýmiskonar römmum og effektum.
64 GB MicroSD kort og þrjár rúllur af pappír fylgja með vélinni.
Flottur heimasími frá Panasonic með frábærum hljómgæðum. Handfrjáls hátalari í handtækinu, símaskrá fyrir 120 nöfn og símanúmer, númerabirtir sem geymir síðustu 50 hringd númer. Frábær rafhlöðuending allt að 15 tímar í tali og 170 klst í bið.
Mi útimyndavélin nær að vakta stórt svæði þar sem linsan í myndavélinni sér 130° sjónarhorn. Myndavélin býður einnig upp á það að senda þér tilkynningar í síma þegar hreyfing verður á sjónsviði hennar. Myndavélin sýnir 1080p upplausn bæði í rauntíma og upptökum en myndavélin en svo þegar fer að dimma notast myndavélin við infrarauða nætursjón svo myrkrið skemmi ekki fyrir vöktuninni.