Fullur heimur stafrænna lausna bíður þín í Galaxy Tab A8, hvort sem það er á ferðinni eða heima uppi í sófa. Þessi handhæga spjaldtölva hentar í hvað sem er, hvort sem það er að vafra um netið, horfa á bíómynd eða lesa. Galaxy Tab A8 dekkar þig.
Láttu sýndarveruleikan leiða þig að týnda hlutnum. Smart Tag kubburinn frá Samsung er kominn til að koma í veg fyrir að þú týnir því sem þykir vænt um.
Ein þau allra bestu frá Samsung. Einangraðu þig frá umheiminum með framúrskarandi hljóðeinangrun eða kveiktu á Ambient sound stillingunni og heyrnartólin munu skynja þegar einhver talar við þig.
Samsung hefur nú kynnt til leiks ný og fullkomnari Buds heyrnatól.Nú eru heyrnartólin þráðlausu minni en áður og léttari. Búið er að bæta við „noise cancellation“ sem útilokar umhverfishljóð og hægt er að stilla hana þannig að notandinn velur hversu mikið af umhverfishljóðum komast í gegn. Á einni hleðslu eiga Galaxy Buds 2 að geta verið í notkun í sjö og hálfa klukkustund en fimm tíma með „noise cancellation“ í gangi allan tímann. Hulstrið sem heyrnartólin eru svo geymd í þegar þau eru ekki í notkun geta komið 29 klukkustunda hleðslu í heyrnartólin, hulstrið styður svo þráðlausa hleðslu.Þessi smáu en öflugu heyrnartól eru frábær viðbót við Galaxy fjölskylduna.
S Pen gerir þér kleyft að skrifa niður minnismiða á fljótari hátt eða leikið þér með teikningar. Ásamt því getur öllum handskrifuðum texta verið breytt í tölvutexta og öllum minnismiðum, glósum eða myndum getur þú breytt í PDF eða jafnvel Word skjal. Pennanum fylgir fallegt hulstur sem geymir pennan fyrir þig og passar hann á sama tíma.
Síminn sem er með þér allan daginn og jafnvel þann næsta án þess að þurfa djús. Sterkbyggðasta hönnun Samsung til þessa pöruð saman við mestu framfarir Samsung í myndavélatækni gerir þetta að þeim síma sem hjálpar þér með daginn.