Hin hefðbundni iPad hefur nú fengið yfirferð og er kröftugri en áður. Spjaldtölvan er útbúin A14 örgjörva og Liquid Retina skjá ásamt því að hafa fengið nýja hönnun.
Samsung Galaxy Tab A9 býr yfir öllum þeim eiginleikum sem þú þarft í þitt daglega líf. Hvort sem það er í vinnu, starfi eða einfaldlega til að leika þér. Spjaldtölvan er búin fallegum og björtum skjá, stórri rafhlöðu, öflugum örgjörva og Samsung Kids.
Fullur heimur stafrænna lausna bíður þín í Galaxy Tab A8, hvort sem það er á ferðinni eða heima uppi í sófa. Þessi handhæga spjaldtölva hentar í hvað sem er, hvort sem það er að vafra um netið, horfa á bíómynd eða lesa. Galaxy Tab A8 dekkar þig.
iPad Air hefur aldrei verið öflugari, með Apple M2 örgjörva sem skilar allt að 50% betri afköstum en fyrri kynslóð. Enn hraðari vinnsla, betri grafík og möguleikar á nýtingu gervigreindar í einu ótrúlega fallegu tæki. iPad Air M2 er hægt að fá með 11“ eða 13“ skjá.
Apple býr til iPad Pro M4 fyrir þau allra kröfuhörðustu. 10 kjarna M4 örgjörvinn ásamt nægu vinnsluminni tryggja bestu mögulegu upplifun þannig að spjaldtölvan breytist úr heimilistæki í atvinnutæki. 11“ eða 13“ Ultra Retina XDR skjárinn skilar hárri upplausn ásamt því að XDR tæknin tekur birtu og liti í hæstu hæðir.