Xiaomi TV Box S gerir þér kleift að breyta hefðbundnu sjónvarpi í snjallsjónvarp. Boxinu er stungið í samband við sjónvarpið þitt með HDMI snúru og er siðan stýrt með lítilli fjarstýringu sem fylgir boxinu. Þegar þú hefur klárað að setja upp boxið opnast þér heill heimur afþreyingar í forritum eins og Sjónvarpi Símans, Youtube og Spotify.
Xiaomi Mop 2 Pro snjallryksugan er komin til þess að taka við heimilisþrifunum. Ryksugan getur ryksugað og moppað nánast hvaða flöt sem er, hvenær sem þér hentar.
Redmi 9AT er með bjartan og fallegan 6.53″ LCD skjá sem er einnig mjög sterkbyggður. Bakhlið símans er hönnuð til þess að veita þér betra grip þegar þú heldur á símanum auk þess að hrinda frá fingraförum sem kemur í veg fyrir að síminn verði kámugur og hjálpar honum að halda fegurð sinni til frambúðar.
Vertu með öryggið á hreinu. Mi útimyndavélin gerir þér kleift að fylgjast með öllu sem er í gangi á lóðinni þinni eða fá tilkynningar þegar eitthvað er í gangi á sjónsviði myndavélarinnar.
Myndavélin sem fylgist með öllu svo þú þurfir þess ekki. Þú færð tilkynningar í símann þinn og getur með einum smell séð hvað er í gangi á sjónarsviði myndavélarinnar!
Vertu með heimilið í símanum þínum. C400 snjallmyndavélin tengist með einföldum hætti í app í símanum þínum þar sem þú getur fylgst með öllu og meira að segja átt samtal í gegnum myndavélina!
Mi útimyndavélin nær að vakta stórt svæði þar sem linsan í myndavélinni sér 130° sjónarhorn. Myndavélin býður einnig upp á það að senda þér tilkynningar í síma þegar hreyfing verður á sjónsviði hennar. Myndavélin sýnir 1080p upplausn bæði í rauntíma og upptökum en myndavélin en svo þegar fer að dimma notast myndavélin við infrarauða nætursjón svo myrkrið skemmi ekki fyrir vöktuninni.